Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Klukkan

Ný síđa

08. febrúar 2008 klukkan 14:41
Nú hef ég fær mig um set, þar sem þessi síða hefur verið minna virk en hin.  En það er moggabloggið sem tekur við.

 www.vilhjalmuringi.blog.is


Stefnan er að hafa þessa síðu virkari heldur en þessa! Viljinn er til staðar þá er það bara spurning um að gera eitthvað í þvíGlottandi

Sjáumst og heyrumst á nýju síðunni
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Próf og verkefna skil

28. nóvember 2007 klukkan 14:40
Ég bíð eftir þeim tímapunkti í kennaranámi mínu þar sem haldinn verður áfangi sem heitir ,,Verkefna skil skal ætíð höfð á sama tíma í öllum áföngum og sem næst prófaviku"

Þetta er allveg mögnuð hefð hjá kennurum að hafa verkefna skil, og það á stórum verkefnum, allveg ofan í prófavikunni og þó maður sé bara hjá fjórum kennurum ákveða þeir allir sama skiladaginn.

Já, nú er þessi yndislegi tími verkefnaskila og prófin allveg að fara að hefjast.  Búinn er ég að skila tveimur stærstu verkefnunum, vinnukröfugreiningu í Þjálffræði og skýrslu um mjólkursýru-, VO2max- og Wingate mælingar í Lífeðlisfræði þjálfunar.  Þá er nú farið að sjá fyrir endann og verkefna rununni, enda kominn tíð til.

Svona til gagns og gamans þá spila liðin Þróttur RVK og Víkingur 6-0 vörn í handknattleik karla í 1. deildinni.

Verið sæl að sinni
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Snilldar vatnaferđ

12. október 2007 klukkan 20:21
Síðustu helgi fór ég í SNILLDAR kanó ferð síðustu helgi! Ferðin byrjaði á Þingvallarvatni í gríðarlegum öldugangi þar sem við þurftum að róa á fimm og hálfs metra öldum!!  Um nóttina var haldið í til í hellum út á eyju í Úlfljótsvatni, en stór vaxinn hundur elti okkur allan leiðina, en komst ekki yfir á eyjunna vegna ólgusjós og blindskerja. Á sunnudaginn var önnur saga en sól skein og hiti hátt upp í tuttugu og þrjár gráður á þegar við fórum niður Sogið.  KFC bauð okkur svo velkominn á Selfossi.
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Lofthrćđsla hvađ??

28. september 2007 klukkan 22:49
Klifurferð síðustu helgi upp í Valshamar í Kjós. Allgjör snilld! Maður hreinlega verður að vara að skella inn myndum!  Allveg magnað að klifra, hefði svo sem verið ennþá magnaðra ef maður hefði náð að sofa um nóttina, hehe, en það skiptir nú ekki öllu máli, maður getur sofið seinna!

Ég byrjaði á því að klifra í svo kölluðu top rop, en þá er reipi sem er fest efst í akkeri, þannig að ef maður dettur þá er það cm spursmál. En svo færði maður sig upp á skaftið og var farinn að leiða, en þá notar maður tvista (tvær karabínur, ein í sitthvorum endanum) til að smella í bolta í klettinum. Ég verð að seigja að það er ansi mikið skemmtilegt að klifra þegar maður er að leiða, enda hjálpar það spennustiginu að í staðinn fyrir að geta dottið nokkra cm verður fallið allt upp í nokkra metra! Sem betur fer datt ég ekki! :-)

Kvennaferðin var á þriðjudaginn, en þá fer kvennþjóðin á Laugarvatni í ferð saman og síðan tekur karlþjóðin við þeim með söng og dansi. Meira verður ekki skrifað um þá ferð, ekki vil ég að síðunni verði lokað vegna ósæmilegs orðbragðs.

Svo er það vinna á morgun, með smá hléi þar sem verið er að fara að kveðja einn úr vinnunni, Pétur karlinn, á Stælnum.

Hittumst heil
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Af dómaramálum

01. september 2007 klukkan 19:41
Jæja, nú er maður búinn að vera að dæma hér og þar undanfarna daga. Var aðstoðardómari 2 í leik Keflavíkur og Fjölnis í undanúrslitum Visabikar-kvenna, en ég er ekki frá því að sá leikur sé svona með stærri leikjum hjá mér í sumar. Fimmtudaginn lét ég sjá mig á ÍR-velli, þar sem ÍR stúlkur lögðu Fjölni 1-0 með marki úr vítaspyrnu Óákveðinn, enn var ég sem aðstoðardómari 2. En svo á morgin er ég í stórum leik, eða leik FH og Breiðabliks í þriðja flokki karla, úrslitum í Visabikarnum þar á bæ, með ekki amalegri dómara heldur en Kristni Jakobssyni. Og í þetta skiptið mun ég sinna stöðu aðstoðardómar nr. 1! Svo er bara að sjá hvort Kristinn mæti með kallkerfisgræjurnar!!Hissa

Skólinn byrjaði síðasta mánudag, eða allaveganna hjá fyrsta árinu, þar sem þau voru tekinn í svoan ,,létt" test, og svo var mjög skemmtileg busun þriðjudaginn.  Skólinn hjá okkur á öðru ári byrjar svo af fullum krafti á mánudaginn.  Fullt af nýjum áföngum og einn sem ég er ekki lítið spenntur fyrir er þjálffræði, þar sem við förum meðal annars í ólympískar lyftingar og fleira skemmtilegt.

En þá er það bara að fara að raða niður í dómaratöskuna og hefja andlega íhugun fram að leik á morgun.

Over and out
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Og sumariđ fór yfir fjörđinn

24. ágúst 2007 klukkan 15:50
Nú er sumarið að lýða undir lok og betrar byrjun í námd. Skólinn byrjar á mánudaginn með því að mæla nýnemani í hinu og þessu, t.d. sundi, hlaupi og ýmsum bolta íþróttum. En það er venja á Laugarvatni að byrja þannig. EFtir mánudaginn gerist svo ekkert í viku og síðan ert farið á fullt þann þriðja. Ég er eitthvað búinn að vera að skoða stundatöfluna hjá mér í haust og hún er vel útilátinn blessunin og nóg að gera í hinum ýmsu greinum.

Neita því ekki að ég hlakka ansi til að byrja í klifur áfanga og ferðamennska á vatni, ábyggilega mjög skemmtilegir áfangar, og sömu leiðis lífeðlisfræðin, en ég geri sterklega ráð fyrir åð sá áfangi verði krefjandi, svo ekki sé meira sagtÞögull sem gröfin

Hætti í vinnunni í síðustu viku, þó ég hafi reyndar unnið í morgun, þannig að ég læt háfinn vera í bili.

Ekki meira að sinni, verið þið sæl
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Fyrstu leikir í ensku

11. ágúst 2007 klukkan 18:40
Nú er fyrstu leikjum þessa tímabils lokið. Ef deildin á að vera svona í vetur þá verður þetta fín afslöppun í vetur, allaveganna miðað við þá leiki sem ég horfði á á sýn 2. Það gleður mig óneytanlega að Liverpool sigraði sinn leik á móti Aston Villa, en sá leikur endaði 1-2, fyrstu tvö mörkin ansi litlaus, sjálfsmark og víti eftir hendi, en síðasta marki HREIN SNILLD!!! Nú horfi ég á 4-4-2 með Guðna Bergs og sé stórlega eftir því að hafa ekki horft á Bolton-Newcastle.

En nú er það bara að hafa sig tilbúinn fyrir partý helgarinnar sem mun vera Baywatch partý í miklum gæðum.

Fannsa systir er komin heim til að vera, útskriftar veisla í gær voða gaman.

Verið sæl að sinni
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Bloggfćrsla

07. ágúst 2007 klukkan 18:06
Nú fer bara að líða að því að maður fari að sitjast á skólabekk en á ný, eða rétt rúmur hálfur mánuður, eða í kringum það bil.

Hér gengur lífið sinn vana gang, einstaka gleðigjafi sem flýtur um í lauginni eða pólverjar á leið ofan í laugina á nærbuxunum! Enn hefur ekki komið til kasta gríðarlegra skyndihjálpar hæfileika minna, sem betur fer.

Stóra systir ákvað að flytja á klakkann, talið er að rafmagnsleysi og hiti hafi hrekið hana og Kristinn í burtu, en ekki tekur betra við þegar  hinngað er komið, allaveganna hvað varðar rafmagnsleysið.

Nú er bara að bíða og sjá hvað ágúst mánuður ber í höndum sér, ferð til Vopnafjarðar, helgi á Laugarvatni undir vökulu auga KSÍ (hæfileikamótun ungra dómara 2007, þar sem ég missti af því 2006) eða hið mesta starfsmanna partý sem um getu. Hver veit, hver veit.

Búinn er ég að lesa síðustu bókina um Harry Potter, er hún með miklum ágætum.

Með þessari færslu ætla ég einnig að kynna nýjann dagskrárlið hér á síðunni sem mun kallast ,,Kveðin upp kvæði", en sá dagskrárliður felur það í sér að hér mun birtast ljóð  eða kvæði einu sinni í viku, sem mest eftir minni, og örlítið fróðleiksbútur um kvæðið ef minni mitt leyfir.

Fyrsta ljóðið mun vera eftir Stein Steinar og er svo hljóðandi:

       Að sigra heiminn er eins og að spila á spil,
       með spekingslegum svip og taka í nefið.
       Og þótt þú tapar, það gerir ekkert til,

       það var nefnilega vitlaust gefið.
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Ferđalag og barnaskítur

17. júní 2007 klukkan 17:07
Heil og sæl kæru landsmenn og til hamingju með daginn

Í tilefni dagsins hef ég ákveðið að skella inn hér smá færslu um hvað hefur verið í gangi , og hvað er í gangi, undan farin misseri.

Skólinn er búinn en honum lauk um miðjan maí.  Einkunirnar eru komnar í hús og er ég bara hinn ánægðasti með þær.Brosandi

Eftir að skólalauk byrjaði ég að vinna sem Hasselhoffari Svalur í sundlaug í Lágafelli, en hún er ný kominn úr kassanum. Þessi vinna er nú bara helvíti fín, fjölbreytt og stundum mikið (oft lítið) að gera. Þar sit ég við kassann og afgreiði með bros á vör, sit á rassinum upp í turni og seigji setningar eins og ,,ekki sitja á línunni!" Öskrandií kallkerfið, þríf karlaklefann og pass að enginn pissi út fyrir, rölti um og athuga að ekki sé allt í lagi og núna síðast bættist það við að við erum farinn að selja bakkelsi sem við bökum á staðnum!Hissa (kemur reyndar forbakað). Ófáir snúðarnir sem eru ,,óvart" búnir að detta í gólfið og enda inn á kaffisstofuSkömmustulegur (ég bara ræð ekki við mig)Gráta

En svona til að hrissta upp í tíð og tíma þá sá ég það að ég hreinlega yrði að skreppa til vopnafjarðar og fór ég þanngað þann fimmtánda þessa mánaðar og var í viku, sum sé ný kominn heim aftur. Hlæjandi

Ekki verður Vopnafjarðar sagan rakinn hér, því trúið mér, hún þarfnast sér færslu!!!HissaGlottandiTala af sér

Hvað varðar daginn í dag, bíð ég með órþreyju eftir kvöldinu þar sem það er læri í matinn, og já svo er ég að fara á landleikinn!! Hæ hó og jibbí jeij og jibbí jeij. Og svo er ekki laust við því að ég hlakka dálítið til morgundagsins, en á morgun geri ég ráð fyrir því að fá út úr því skorið hvort ég sé orðinn nemi í nuddskóla Íslands eður ei!!!!!!!!Saklaus en fyrir þá sem ekki vita sótti ég um nám þar stuttu eftir skóla lok á Laugarvatni. Stefnan er að taka íþróttafræði námið og nuddnámið sam hliða næsta veturUllandi  Því ekki má maður hafa of lítið að gera!!

Kæru landsmenn, til hamingju með daginn

Verið hress, ekkert stress og já bless


Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson

Langt síđan síđast

25. apríl 2007 klukkan 22:57
Já ég get einfaldlega ekki orða tamist, langt síðan síðast. Ég rankaði við mér fyrir viku síðan og áttaði mig á því að ég væri ekki búinn að blogga í lengri, lengri, lengri tíma, eða allaveganna mjög langa. Ég spratt á fætur, hljóp að tölvunni, dritaði inn aðgangsorðið eins hratt og ég gat og viti menn, ég komst inn. En þegar inn var komið kannaðist ég ekkert mikið, vegna stál minnis og gríðarlegrar tölvuhæfileika mundi ég ekki hvernig átti að skrifa nýtt blogg. Eftir þessa stund var markmið mitt með lífinu einfalt, koma skilaboðum (þ.e. nýrri færslu) til umheimsins. Eftir treitulausa vinnu, sem tafðist örlítið vegna ritgerða smíðar og tjútt verkefnis, hef ég komist að því hvernig maður gerir nýtt blogg, maður klikkar á hnappinn ,,Ný færsla".

Ég ákvað að skrifa þessa reynslu sögu mína til þess að aðrir gætu lært af þeim mistökum sem ég gerði, EKKI BLOGGA SJALDAN, það gæti komið í bakið á ykkur!

Af öllum líkindum mun ég blogga aftur á morgun til að viðahalda þekkingu minni á blogg heiminum.

Þanngað til verið sæl
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson